Ýmislegt
Öryggisafrit á netinu
Átt þú öruggt afrit af gögnunum þínum?

Hvar eru gögnin mín?!

Það er fátt verra sem við kemur tölvunni hjá manni en að tapa gögnunum sem eru á henni. Harði diskurinnn getur bilað, tölvunni gæti verið stolið, vírus gert einhvern óskunda eða maður einfaldlega slysast til þess að ýta á “Delete” takkann. Þetta getur valdið tapi á mikilvægum skjölum eða þaðan af verra, t.d. tapi á vinnuskjölum eða ómetanlegum fjölskyldumyndum. Í þeim tilfellum er ekkert eins gott og að vita af því að maður eigi nýlegt afrit af gögnunum einhversstaðar.

Hvernig tek ég afrit?

Þegar maður tekur afrit eru aðallega tveir augljósir kostir í stöðunni að mínu mati:

Taka afrit á utanáliggjandi harðann disk.

Þetta er góð aðferð, sérstaklega ef maður geymir hann ekki heima hjá sér, því það gæti jú kviknað í og þá fuðrar afritið upp ásamt tölvunni. Gallinn við þessa aðferð er að þetta er mjög handvirkt ferli. Þú þarft sjálfur að tengja diskinn við tölvuna, afrita skrárnar og fara með diskinn af heimilinu, auk þess að passa upp á að diskurinn sem þú tekur öryggisafritið á sér sjálfur í lagi. Þetta virkar þó fínt fyrir marga. Flest stýrikerfi eru með innbyggt forrit til þess að gera þetta aðeins einfaldara eins og t.d. Windows (skrifið bara Backup í Start Menuinn).

Notast við “online” afrit.

Kostirnir við “online” afrit eru ótvíræðir. Þetta er sjálfvirkt ferli með aðstoð forrita sem þarf bara að setja upp einu sinni. Þú þarft ekkert að fylgjast með og afritið er alltaf aðgengilegt svo lengi sem þú kemst á netið. Svo er afritið heldur ekki geymt á sama stað og tölvan sem gerir þetta enn öruggara. Það eru nokkrar þjónustur sem eru hvað vinsælastar og ég mæli svosem ekki sérstaklega með einni framyfir aðra, en ég notast sjálfur Crashplan. Þær kosta flestar eitthvað mánaðarlega eða árlega en að mínu mati er það klárlega peningum vel varið. Hérna eru nokkrar af þessum þjónustum:

Ég mæli þó sterklega með því ef þú ætlar að notast við “online” afrit að vera með góða nettenginu eins og t.d. Ljósnet eða ljósleiðaratenginu. Að taka afrit þýðir auðvitað að þú þarft að hlaða upp jafnvel fleiri gígabætum af gögnum, og á nettengingu sem hefur slakann upphalshraða eins og t.d. ADSL getur það tekið marga daga. Ef þú hefur kost á að færa þig yfir á ljósleiðaratengingu eða Ljósnet þá mæli ég hiklaust með því, það kostar ekkert meira en ADSLið.

Geymdu gögnin á netinu ef þú getur.

Það eru þó einnig til leiðir til þess að minnka aðeins þörfina á afritum, þó þú komir í raun aldrei í veg fyrir hana. Ein góð leið til þess er að notast við “online” skjalageymslur eins og t.d. SkyDrive, Google Drive eða DropBox. Þá eru skjölin sem þú geymir þar einnig aðgengileg á netinu en mundu að þau geta horfið þaðan jafn auðveldlega og af tölvunni með því að slysast í “Delete” takkann og því koma þau alls ekki í veg fyrir afritatöku.

2 Comments
jonorri

May 10, 2012 11:24 am Reply

Óþarfi að vera með ljósleiðara ef þú ætlar að vera með Carbonite. Þeir cappa allan hraða til/frá svo svakalega að þetta tekur jafn langan tíma og áður :)

    stebet

    May 10, 2012 11:29 am Reply

    Þá færir þú þig einfaldlega frá Carbonite. Það er lítið gagn í að vera með slappa afritatöku. :)

Leave a Comment